Flestir ættu að reyna að tileinka sér að drekka vel af vatni alla daga til viðhalda góðu vökvajafnvægi í líkamanum. Hér höfum við sett saman góðan morgundrykk til að byrja daginn:
·1 stórt volgt vatnsglas
·1 skeið af Feel Iceland kollagendufti
·2 tsk chia fræ
·½ sítróna (safinn) og sneið í glasið
·½-1 tsk raspaður engifer
·1/4 -1/2 tsk cayennpipar
·Minta (má sleppa)
Hitið vatnið og hellið í glas, bætið kollageni og chiafræjum saman við og látið kólna örlítið. Síðan er öllu blandað saman. Gott er að setja allt í blandara, en alls ekki nauðsynlegt. Berið fram í fallegu glasi, með sítrónusneið og mintu.