Hráefni:
2 bollar steinlausar döðlur
1/3 bolli hnetusmjör
1-2 msk Feel Iceland kollagenduft
100 gr brætt súkkulaði
1/2 tsk gróft sjávarsalt
Aðferð:
1. Setjið döðlurnar í matvinnsluvélina og maukið. Gerið kúlur úr döðludeiginu.
2. Hitið hnetusmjörskrukkuna smá yfir vatnsbaði og hrærið kollagenduftinu vel saman við. Setjið smá hnetusmjörsblöndu ofan á kúlurnar, dýfið þeim í súkkulaði eða hellið því yfir kúlurnar og stráið smá salti yfir.
3. Kælið/frystið og njótið