Sörur eru eitt vinsælasta heimagerða konfektið hér á landi. Okkur fannst því tilvalið að gera góðar sörur enn betri og bæta kollageninu okkar út í.
Botnar:
- 4 stk eggjahvítur (stór egg)
- 250 gr flórsykur
- 250 gr möndlur, hakkaðar
- 3 msk Feel Iceland kollagen
Krem:
- 4 stk eggjarauður (stór egg)
- 125 gr sykur
- 100 ml vatn
- 250 gr smjör ósaltað,
- 2 msk kakó
- 2-3 msk Feel Iceland kollagen
Súkkulaðiskel:
- 300 gr suðusúkkulaði
Ofangreind uppskrift gerir um 60 stórar sörur, ca 100 stk minni sörur
Aðferð:
- Ofninn hitaður í 180 gráður með blæstri.
- Eggjahvíturnar stífþeyttar.
- Flórsykri, kollagendufti og möndlum hrært saman fyrst, svo blandað varlega út í stífþeyttar eggjahvíturnar.
- Sett á plötu með teskeið eða sprautupoka og bakað í 10-12 mínútur en síðan eru kökurnar látnar kólna aðeins, áður en kremið er sett á. Best að geyma þær í kæli/frysti.
- Sykur og vatn soðið saman upp að 116 gráðu hita (lögurinn farinn að þykkna ögn en ekki breyta lit). Á meðan eru eggjarauðurnar þeyttar mjög vel.
- Heitum sykurleginum hellt út í smátt og smátt og þeytt á meðan. Best er að hella milli skálarbarms og þeytara, því ef hellt er beint á þeytarana geta komið slettur. Þeytt áfram smástund og síðan er smjörinu hrært gætilega saman við og að lokum er kakói og kollagendufti bætt út í.
- Kremið sett á kökurnar (botninn) með matskeið eða sprautupoka (muna jafna svo verði fallegar) og kælt vel.
- Súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og kökunum dýft ofan í. Sörur þarf að geyma í kæli, helst í frysti og þá endast þær í 6-12 mánuði, eftir því hversu loftþéttar umbúðirnar eru.