Hér kemur snilldar morgunmatur sem er frábært að gera kvöldið áður, geyma í lokaðri krukku inni í ísskáp. Hann er bæði ótrúlega bragðgóður og mjög saðsamur.
Hráefni:
1 bolli grófir hafrar
2 bollar mjólk að eigin vali
1/3 tsk vanilla
1/2 msk sæta að eigin vali
1 msk möndluflögur
1 msk Feel Iceland kollagenduft
1/2 bolli frosin hindber
Aðferð:
Skiptið öllu nema hindberjunum í tvær krukkur eða box sem hægt er að loka, hrærið vel saman og setjið svo hindberin frosnu ofaná. Lokið krukkunum og geymið inni í ísskáp yfir nótt.
Dásamlega ferskur og góður morgunmatur sem frábært er að byrja daginn á.